- Kt. 551200-2130
- Neyðarnúmer varahluta: 775 6134 (15. júní til 30. ágúst) - Gjaldskylt
- landstolpi@landstolpi.is
Sjálfvirk fuglafæla sem gengur fyrir gasi. Þessi svínvirkar og er kærkomin þegar gæsin og álftin eru að gæða sér á ökrunum.
Hægt er að stilla lengd stútsins. Góð reynsla er af þessari tegund fuglafælu og er hún skilvirk. Til þess að ná hámarks árangri er hægt að snúa fælunni reglulega því þá venst fuglinn henni ekki.
Sérpöntun.
Laserop fuglafælan notast við nákvæmnis linsur og hágæða íhluti og hentar mjög vel sem örugg, árangursrík og hljóðlaus fuglafæla. Fuglafælan hentar mjög vel í landbúnaði og á þéttbýlisstöðum þar sem hávaði getur valdið vandamálum. Laserop fuglafælan er skilvirkust snemma á morgnanna eða seint á kvöldin þegar fuglarnir eru virkastir.
Besta virknin næst þegar rökkur er úti. Mikil reynsla er af Laserop í Hollandi og hefur fælan reynst mjög vel á ökrum og túnum hjá bændum, í iðnaðarhverfum, á flugvöllum og fleiri stöðum. Reynslan hefur sýnt að regluleg notkun á lasernum heldur fuglunum frá í lengri tíma.
Sérpöntun.