- Kt. 551200-2130
- Neyðarnúmer varahluta: 775 6134 (15. júní til 30. ágúst) - Gjaldskylt
- landstolpi@landstolpi.is
Dráttarvéladekk eru til af nokkrum gerðum og eiginleikar þeirra eru mismunandi.
Stærri snertiflötur þíðir minni jarðvegs þjöppun. Hægt er að auka snertiflöt dekkja með því að minnka í þeim loftþrýstinginn, en hafa ber í huga að burðarþol þeirra minnkar og draga verður úr hraða.
Einnig eru til dekk sem eru gerð fyrir minni loftþrýsting án þess að það komi niður á burðarþoli og hraða.
"Standard" dráttarvéladekk er þannig uppbyggt að loftþrýstingur - burður og hraði spila saman. Þ.e.a.s. við aukinn hraða og burð þarf að auka loftþrýsting.Einnig er hægt að auka snertiflöt dekkja með því að fara í breiðari dekk. Sem dæmi má nefna að vél sem er á 580/70R38 að aftan getur notað 650/65R38 í staðinn, sama hæð en breiðara dekk.
Huga þarf að því að breiðara dekk kallar yfirleitt á breiðari felgur.
Best er að fletta upp hvað hver dekkjaframleiðandi mælir með, það er ekki endilega það sama milli framleiðanda.
Hér er smá dæmi frá einum framleiðanda um loftþrýstings:
IF (improved flexion) dráttarvéladekk þola 20% minni loftþrýsting en "Standard" án þess að það komi niður á burði og hraða sem þýðir að þau henta betur þegar að hugað er að jarðvegsþjöppun.
VF (very high flexion) eru svo besti kosturinn þegar að huga þarf að þjöppun á jarðvegi. Vf dekk leyfa 40% minni loftþrýsting en "Standard" dekk án þess að það komi niður á hraða og burði í þeim aðstæðum sem dráttarvélin er að vinna við.
Alltaf er mælt með því að auka loftþrýstinginn þegar um langan akstur í langan tíma er að ræða.
Ef að dekk er tekin undan vegna viðhalds, þarf að passa að herða felgurær með réttri herslu aftur undir haugsuguna til að allt sé eins og það á að vera.
Það er eitt það versta sem rafgeymir „lendir“ í er að standa afhlaðinn án þess að fá hleðslu/viðhaldshleðslu.
Það er ekki það versta fyrir rafgeyma að afhlaðast, heldur er það tíminn sem að rafgeymirinn stendur afhlaðinn. Eftir tvær vikur c.a. afhlaðinn er það farið að hafa varanleg áhrif á rýmd rafgeymisins.
Rafgeymir sem að afhleðst og er hlaðinn strax aftur er yfirleitt í góðu lagi og er því mjög miklivægt að eiga gott sjálfvirkt hleðslutæki/vaktara. Passa þarf að hleðslutækið sé hentugt að stærð fyrir þann/þá rafgeymi/a sem hlaða skal.
Afhlaðinn rafgeymir er með daufa sýru (næstum vatn) og því viðkvæmur kulda (frosti -3°C)
Fullhlaðinn rafgeymir (12.6V eða yfir) er með sterka sýru og því mjög frostþolinn (-68°C)
Geymir sem er lengi afhlaðinn myndar súlfíðkrystalla á blýplötur sem ekki er mögulegt að breyta í uppleysanlegt súlfíð og blandast því ekki við vökvann í rafgeyminum og lækkar því sýrustig vökvans ásamt virku flatarmáli blýplatnanna og kemur því til með að minnka það magn af rafmagni sem rafgeymirinn geymir. Rýmd rafgeymisins minnkar.
Afhleðsla rafgeymis – Sýra breytist í fast efni (súlfíð) – bindur sig í blýplötur
Hleðsla rafgeymis – Súlfíð leysist upp og blandast vökva (verður sýra)
H2SO4 – brennisteinssýra (sulfur oxide)
Pb – blý (lead)
Pb02 – blýoxíð (lead sulfide)
SO2 – súlfíð (sulfide)
H2O – vatn (H2 hydrogen – O súrefni)
Afhleðsla rafgeyma sem standa í tæki getur verið allt að 7%-9% á mánuði og jafnvel enn meiri ef að útleiðsla í tækinu er mikil. Eins eru sum tæki sem eru að nota straum af ýmsum ástæðum þó að ekki sé „svissað“ á.
Engar vörur í flokki