Til baka
Meðhöndlunarkerfi fyrir nautgripi
Meðhöndlunarkerfi fyrir nautgripi

Meðhöndlunarkerfi fyrir nautgripi

Vörunr.

 

Af hverju að erfiða of mikið við störfin þegar hægt er að gera þau einföld og þægileg?

Með meðhöndlunarkerfinu er einfalt að reka gripina að því, láta þá fara í hring og enda t.d. í tökubás eða meðhöndlunarbás. Í básnum er meðal annars hægt að sæða, eyrnamerkja, fangskoða, meðhöndla og fleira. 

Meðhöndlunarkerfið er færanlegt með notkun þrítengis og/eða gaffals og svo fylgir þessu strappi. Uppsetning á kerfinu tekur innan við 10 mínútur fyrir 2 menn.

2500 mm langt hlið er notað til þess að reka á eftir gripunum í hálfhring sem er 5 m í þvermál og rúmar um það bil 8 gripi.

Kerfið samanstendur af:

  • 3 frístandandi sveigðum borðum með hökum til þess að færa hlið fram og þrengja að gripunum.
  • 1 færanlegt hlið með loku á gormi í RHS ramma
  • 1 útgönguborð með hliði
  • 2 stykki 2500mm stuðningsrammar
  • 2 stykki 2460mm langar og 1750mm háar milligrindur
  • 1 stykki 850mm breiður tengi- og stuðningsrammi og tengipinnum.

Myndband af virkni kerfisins má sjá hér fyrir neðan.

 

Lýsing

Meðhöndlunarkerfi fyrir nautgripi

Meðhöndlunarkerfi fyrir nautgripi