Til baka
Easyfix Velferðainnréttingar
Easyfix Velferðainnréttingar

Easyfix Velferðainnréttingar

Vörunr.

EASYFIX snýst um velferð og þægindi gripa. Þeir leggja áherslu á að útvega þægilegustu og nýstárlegustu legubásalausnir fyrir mjólkurkýr sem völ er á.

Þökk sé sveigjanleika Easyfix Plast og gúmmí beislanna gera þær kúnum kleift að standa upp og leggjast niður án þess að eiga á hættu að meiðast, sem gerir þær öruggari og minnkar streitu.

Byltingarkenndur EASYFIX legubásinn veitir kúnum frelsi útiverunnar innandyra og hefur sannað gildi sitt við að hámarka þægindi, velferð og afurðir kúnna. Legubásarnir fást í tveimur útfærslum EASYFIX Dream og EASYFIX Calm.

Hugmyndafræði Easyfix er að bjóða bændum uppá áreiðanlega og sterkbyggða legubása, sem um leið er nógu sveigjanlegur til að tryggja kúnum hámarks þægindi og velferð. EASYFIX legubásar veita bændum hugarró, gott verðgildi og áreiðanleika, þrátt fyrir að hámarka þægindi og öryggi fyrir kýrnar.

Nærri hálf milljón EASYFIX legubása hefur verið sett upp í yfir 50 löndum um allan heim, og þeir standa áfram undir nafni sem „öruggustu og þægilegastu legubásar í heimi“.