Til baka
Sagdreifari fyrir borvél
Sagdreifari fyrir borvél

Sagdreifari fyrir borvél

Vörunr. VIZS

 

Sagdreifarinn er einfalt handverkfæri sem er knúið áfram af batteríisborvél og þannig er hægt að dreifa sagi eða öðru þurru efni í básana hratt og auðveldlega. Dreifarinn hentar vel fyrir mismunandi undirburð eða samsetningar því hann bæði dreifir og blandar á sama tíma.

Dreifarann er einnig hægt að nota í stíur þar sem gripir eru og þá þarf hirðirinn ekki að fara inn í stíuna, opna og loka hliðum og þess háttar, heldur getur hann notað dreifarann utan frá. Vegna þess að undirburðinum er dreift rétt fyrir ofan gólfflötinn til hliðar og frá hirðinum/bóndanum þá verður notandi dreifarans ekki var við neitt ryk sem annars getur verið algengt ef dreifari er ekki notaður.

 

Lýsing