Til baka
Undanrennuduft - Nukamel
Undanrennuduft - Nukamel

Undanrennuduft - Nukamel

Vörunr. 9011

 

Nukamel Blue er með mjög góða efnasamsetningu sem forðar setmyndun í kálfafóstrum.

 

Lýsing

  • Steinefni: Nukamel Blue inniheldur öll nauðsynleg steinefni/bætiefni til að viðhalda eðlilegum vexti kálfa. Mörg steinefni hafa mikilvægu hlutverki að gegna í uppvexti kálfa.
  • Magnesium: Er mikilvægt fyrir taugakerfið.
  • Kopar: Er mikilvægt til að viðhalda góðri húð.
  • Mangan: Er mikilvægt fyrir meltinguna, bein myndun og frjósemi.
  • Sink: Sink skortur getur valdið sjúkdómum í skinni, einnig er sink hluti af mörgum ensímum sem eru mikilvæg fyrir frumur og frumumyndun.

Geymsla

Varist að geyma duftið í miklum hita og þar sem mikill raki er.

Blöndun

125-130gr. af Nukamel blue í 1 líter af vatni.

Nauðsynlegt er að byrja að gefa Nukamel Blue eins fljótt og hægt er eftir fæðingu. Styrkja má blönduna ef þurfa þykir um 20%.

Á fyrstu viku er gott að byrja að gefa fóðurbæti (Euro start múslí) og gefa þá lítinn skammt í einu. Eftir um það bil 5 daga frá burði er gott að kálfarnir hafi aðgang að hreinu vatni helst um 30° heitu. Eftir tvær vikur er nauðsynlegt að kálfar hafi frjálsan aðgang að hreinu vatni.

Nukamel