Til baka
DairyPilot - Viðbótarfóður
DairyPilot - Viðbótarfóður

DairyPilot - Viðbótarfóður

Vörunr. J1008559

 

DairyPilotFlavoVital® er ljúffengt viðbótarfóður fyrir nautgripi sem inniheldur pólýfenól úr völdum ávöxtum og kryddjurtum (FlavoVital), B-vítamín og lifandi gerla. DairyPilot er hentugt til þess að viðhalda góðri nyt og heilbrigði. DairyPilot er ráðlagt út frá hagkvæmum og heilsufarslegum sjónarmiðum fyrir hjörðina þína. 

DairyPilot fæst í 20kg. pokum.

 

Lýsing

JOSERA DairyPilot er heildarlausn fyrir allt mjólkurskeiðið sem viðheldur nyt og bætir efnainnihald. Með FlavoVital®, B-vítamíni og lifandi gerlum, er DairpyPilot einstök blanda, sem er fengin út frá ítarlegum JOSERA rannsóknum og prófuð á yfir 6000 kúm á mismunandi tilraunabúum. 

 Þinn ágóði af notkun DairyPilot:

  • öflugar hjarðir sem batast fljótt
  • hærri nyt og meiri fita
  • betri velferð dýra
  • meiri ró og yfirvegun í fjósinu
  • betri afkoma

FlavoVital® er einstök blanda úr virkum efnum sérsniðin til þess að nýta samverkandi áhrif sérvalinna ávaxta og kryddjurta til að auka heilbrigði og velferð dýranna. 

 Þetta birtist í kostum vörunnar sem eru:

  • styrkir taugakerfið og veitir vörn gegn bólgum
  • stöðug efnaskipti og mikil skilvirkni efnaskipta
  • mikil vambarvirkni og stöðugt pH-gildi
  • mikil fóðurinntaka og bættur fóðurstuðull ásamt bættri orkunýtingu

 Við mælum með 100 gr á dag á hverja kú og allt upp í 200 gr á álagstímum. Fyrir kálfa í uppeldi er ráðlagt að gefa 20-50 gr.

Innihaldslýsing og frekari upplýsingar