Vinningshafi tilkynntur í Bítinu á Bylgjunni

Nú er búið að draga út vinningshafa í leiknum okkar, sú heppna er Dagný Ragnarsdóttir og hlýtur hún í verðlaun aðventuferð fyrir tvo til Dublin dagana 30. nóvember – 3. desember. 

 

Heimir og Gulli hringdu í Dagnýju í morgun í beinni útsendingu á Bylgjunni og færðu henni gleðitíðindin. Þau áttu mjög skemmtilegt spjall á meðan hún drakk morgunkaffið sitt.

 

Við þökkum öðrum kærlega fyrir þáttökuna og erum mjög glöð að sjá hversu margir hafa tekið þátt í að dreifa boðskapnum okkar: „Ísland þarfnast landbúnaðar“.