Við erum áfram framúrskarandi

Þriðja árið í röð hefur Landstólpi ehf. verið valið á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki á Íslandi 2017 og er því á meðal 2.2% íslenskra fyrirtækja sem uppfylla ströng skilyrði Creditinfo um styrk og stöðugleika. Það er markmið Landstólpa að að vera ætíð til fyrirmyndar á öllum sviðum og okkur mikils virði að vera meðal þeirra fyrirtækja sem efla íslenskt efnahagslíf.

Lykilinn að þessum árangri er fyrst og fremst mannauðurinn. Hjá Landstólpa er einvala og samhent starfsfólk og gaman að tilheyra slíkum hópi.

Þess vegna ber að þakka starfsmönnum fyrir frábæran árangur – því það eru þeir sem eru framúrskarandi