VÉLAR OG TÆKI 2023

Ágæti lesandi,  

Með þessum bæklingi viljum við hjá Landstólpa, eins ogundanfarin ár, stikla á stóru yfir það sem við höfum upp á að bjóða í véladeild okkar. Ávallt er eitthvað um nýjungar í vélabransanum og ber þar helst að nefna McHale Fusion 4 rúllusamstæðu og Giant G2700 rafmagnsliðlétting. Auk þess kynnum við til sögunnar slöngudreifibúnað frá Storth sem eykur til muna afköst við mykjudreifingu og lengir tímann sem hægt er að stunda þá vinnu. Farið er nánar yfir þetta og fleira í bæklingnum.

Í bæklingnum kynnum við sérstök forpöntunarverð sem gilda til 20. janúar 2023. Greitt er 10% staðfestingargjald við pöntun en við afhendingu greiðast eftirstöðvar kaupverðs. 

Stríðið í Úkraínu hefur haft áhrif á okkur eins og aðra, hafandi þurft að takast á við miklar verðhækkanir frá birgjum undanfarið. Skýrist það meðal annars af miklum hækkunum á stál- og orkuverði, auk þess sem að mikið af íhlutum í landbúnaðartæki koma af þeim svæðum sem stríðið nær yfir. Hefur þetta einnig haft áhrif á afhendingar sem hafa margar dregist fram úr hófi. Minni ég því á að menn og konur séu fyrirhyggjusöm í tækjakaupum og panti í tæka tíð ætli þau sér að endurnýja eitthvað fyrir komandi sumar.

Við bjóðum eins og áður upp á sérstök forpöntunarverð sem gilda til 20. janúar 2023.

Fyrir hönd Landstólpa vil ég óska lesendum gleðilegra jóla og farsældar ákomandi ári.

Loftur Ó. Grímsson,
sölustjóri vélasviðs

SMELLIÐ HÉR TIL ÞESS AÐ SKOÐA BÆKLING!