Tveir ungir og efnilegir

Í gær komu til okkar 2 ungir og efnilegir körfuboltamenn frá Flúðum, en þeir Eyþór Orri og Aron Ernir eru í unglingalandsliði u-16.

Strákarnir fóru í byrjun sumars til Finnlands að keppa á norðurlandamótinu og gerðu sér lítið fyrir og nældu sér í 3.sætið.

Á næstu vikum eru þeir svo á leiðinni til Svartfjallalands að keppa á Evrópumóti. Landstólpi er stoltur styrktaraðili þeirra og óskar þeim félögum góðs gengis.