- Kt. 551200-2130
- Neyðarnúmer varahluta: 775 6134 (15. júní til 30. ágúst) - Gjaldskylt
- landstolpi@landstolpi.is
Gleðilegt sumar kæru landsmenn
Það er ekkert eins mikill vorboði eins og sáðvörulisti Landstólpa og farfuglarnir – og hafa nú birst öllum til gleði og ánægju!
Hitt er svo annað mál að Sáðvörulistann 2018 er hægt að fanga hér vinstra megin á heimasíðunni en farfuglana ekki.
Á listanum er að finna ,,gömlu og góðu“ tegundirnar ásamt nýjungum eins og td. rývingul og mismunandi ,,Stólpa blöndur“.
Það er okkur líka ánægja að geta boðið upp á fræ með sérstakri köfnunarefnishúðun, svokallaðri ProNitro fræhúðun, sem gefur næringu strax eftir sáningu.
Ekki hika við að hafa samband við sölumenn okkar fyrir frekari upplýsingar og fyrirspurnir.