Nýr krani og kennsla

Nú á dögunum bættist við glænýr kranabíll hjá okkur, MAN TGS 41.500, með 92 tonnmetra Palfinger krana. Bæði burðargeta og lengd kranans koma til með að hjálpa til við að auka en frekar skilvirkni og hagkvæmni í reisingu stálgrindarhúsanna og öðrum verkum. 

Notum tækifærið og þökkum Krafti hf. fyrir góða þjónustu og stuttan afhendigartíma. 

Við þetta tilefnið fannst okkur einnig kjörið- og ástæða til að halda öryggisnámskeið fyrir kranamennina okkar og læra í leiðinni á nýja kranann. Fengum Kristján Vignisson frá JÁ verktökum, Helga Þórarinsson frá Atlas og þá Odd R. Ólafsson og Karl Þ. Hreggviðsson frá vinnueftirlitinu til að vera með námskeiðið. Þökkum við þeim kærlega fyrir.