..

Við ætlum að skella okkur á Eurotier sýninguna í Hanover í Þýskalandi.

Sýningin stendur frá þriðjudeginum 10. nóvember til og með föstudeginum 13. nóvember.

Hægt verður að hitta á sölufulltrúa Landstólpa á þriðjudaginn hjá Trioliet og Urban.

  • Eiríkur - s. 849 2188 
  • Kristinn - s. 616 1453

Þriðjudagur:

Kl: 12:00

 Ert þú í hugleiðingum með heilfóðurkerfi, blandara og eða stæðuskera líttu við á okkur á þriðjudaginn kl: 12:00 í Trioliet básnum.

Kl: 15:30

 Kálfafóstrurnar frá Urban hafa marg sannað sig við íslenskar aðstæður. Kíktu til okkar og við förum yfir málin hjá Urban á þriðjudaginn kl. 15:30

Það verða fleiri þekkt merki frá Landstólpa á sýningunni og listi hér að neðan af þeim:

JOZ - Hvort sem það er flórsköfuróbót eða hefðbundnar flórsköfur þá eru JOZ með lausnina fyrir þig https://joz.nl/en

Staðsetning: Höll: 12 Svæði: A05

RoMill - ROmiLL sérhæfa sig í framleiðslu valsa og annara kerfa tengdum úrvinnslu korns og annara yrkja. ROmiLL hefur síðastliðinn 30 ár verið fremstir í sínum flokki og eru í sérflokki við framleiðslu pulsugerðavéla fyrir bygg. https://www.romill-ag.cz/en/

Staðsetning: Höll: 12 Svæði: E34

Suevia býður uppá mikið úrval af vatnsdöllum og körum. https://suevia.com/

Staðsetning: Höll: 12 Svæði: D50

Spinder býður uppá mikið úrval innréttinga, bása, læsigrinda, útdraganlega grinda og fl. https://www.spinderdhc.com/

Staðsetning: Höll: 12 Svæði: B42

Arntjen Germany GmbH - Internationale Farmtechnik, Arntjen loftræstigluggarnir hafa verið hér á landi í mörg ár, eru einnig með mikið úrval ljósa fyrir útihús https://www.arntjen.com/

Staðsetning: Höll: 12  Svæði: F58

Urban - Kálfafóstrunar frá Urban hafa marg sannað sig við íslenskar aðstæður https://www.urbanonline.de/en/

Staðsetning: Höll: 13  Svæði: B10

Easyfix býður uppá mikið úrval af velferðar innréttingum og velferðagólfum https://easyfix.com/

Staðsetning: Höll: 13  Svæði: C58

Hanskamp - Hanskamp býður uppá kjarnfóðurbása, þjófahlið á kjarnfóðurbása og gegnumganganlega kjarnfóðurbása. https://hanskamp.com/en/

Staðsetning: Höll: 13 Svæði: D66

Mueller - Mjólkurtankarnir og mjólkursíló frá Mueller hafa verið í fremstu röð á heimsvísu í gæðum og endingu í yfir 70 ár. Mueller leggur áherslu á framúrskarand kælieiginleika og lágan rekstarkostnað. https://en.paulmueller.com/

Staðsetning: Höll: 13 Svæði: A30

Agri-Plastics - Sérstaða Agri-Plastic er á sviði ungkálfa og umhverfi þeirra á viðkvæmasta stigi uppeldisins. Kálfaboxinn frá Agri-Plastics eru hönnuð með það í huga að kálfurinn fái heilbrigða byrjun á lífinu. https://calfhutch.com/

Staðsetning: Höll: 13 Svæði: C68

Fullwood - Fullwood hefur verið að hanna mjaltaþjóna í yfir 20 ár og einbeitt sér að því að koma með bestu lausnirnar til að tryggja öruggar og skilvirkar mjaltir fyrir alla sína kúabændur. https://fullwood.com/en/

Staðsetning: Höll: 13  Svæði: D33

Josera Landstólpi hefur flutt inn hágæða steinefni og íblöndunarefni frá Josera í langan tíma með góðum árangri hér á landi. https://josera-agriculture.com/

Staðsetning: Höll: 21  Svæði: J28

Giant Tobroco-Giant hefur frá árinu 1996 framleitt gæða liðléttinga og fylgihluti fyrir þá. Í dag býður fyrirtækið upp á eitt mesta úrval liðléttinga á markaðnum með 36 mismunandi týpur https://www.tobroco-giant.com/en/

Staðsetning: Höll: 27 Svæði: C08

Bosch Beton- Bosch Beton er með margra ára reynslu á forsteyptum stæðuveggja einingum, þessir veggir hafa nú þegar sannað gildi sitt hér heima. https://www.boschbeton.com/

Staðsetning: Höll: 27 Svæði: C40

Dairy Power Dairypower er hvað þekktast hér á landi fyrir að framleiða flórsköfur. En í dag eru þeir brautryðjendur í Aeration kerfum, sem er loftkerfi í haughús til að hræra uppí þeim með lofti. https://dairypower.com/

Staðsetning: Höll: 27 Svæði: D54

Trioliet - Triolet hafa í marga áratugi verið meðal fremstu framleiðenda í heildstæðum fóðrunarlausnum, allt frá kubbaskerum yfir í eldhús með sjálfvirku gjafakerfi. https://www.trioliet.com/

Staðsetning: Höll: 27  Svæði: G39

Brassel und Lade - Brassel sérhæfa sig í iðnaðar og landbúnaðaraukabúnaði og eru staðsett í hjarta iðnaðarins í norður Þýskalandi. https://www.bressel-lade.de/en

Staðsetning: Höll: 27  Svæði: H32

Holaras - Holaras eru mjög framarlega í hönnun og framleiðslu á stæðujöfnunarbúnuðum og stæðuþjöppurum. https://www.holaras.com/

Staðsetning: Höll: 27  Svæði: H32

Easy Silage B.V. https://easysilage.nl/en/

Easy Silage framleiðir yfirbreiðslubúnað með fjölnotadúk.

Staðsetning: Höll: 27 Svæði: D03

Storth Ltd  - Landstólpi hefur til sölu haugdælur og haughrærur frá breska framleiðandanum Storth. Síðastliðinn 20 ár hefur fyrirtækið verið í fremstu röð í heildstæðum lausnum á sviði haugs. https://storthmachinery.co.uk/

Staðsetning: Höll: 27  Svæði: B33