GRÉGOIRE BESSON á Íslandi

Landstólpi kynnir með stolti nýtt vörumerki á íslenskum markaði, Gregoire-Besson. Þetta franska fyrirtæki hefur í áraraðir framleitt í miklu úrvali hágæða jarðvinnutæki sem þekkt eru um allan heim fyrir endingu og áreiðanleika: Vendiplóga og diska- og fjaðraherfi.

Af sjálfu leiðir að franska fyrirtækið hefur safnað að sér stórum og stækkandi hópi tryggra viðskiptavina.

Gaman er að geta þess að plógar frá Gregoire-Besson hafa tvisvar sinnum slegið heimsmet í plægingu, síðast árið 2007 þegar 644 hektarar voru plægðir á einum sólarhring.

 Hægt er að sjá vöruúrvalið HÉR